KnasterKOPF
Fagtímarit um krítarpípur / leirpípur og
sögu tóbaksneyslu
>Þær koma úr jörðu við því
nær allar fornleifarannsóknir í borgum og það
má finna þær í fjölmörgum söfnum
- tóbakspípur úr brenndum leir. Ef þær
eru skoðaðar vel getur skrautið á þeim og merkingarnar
sagt margt um uppruna þeirra, um stjónmálaástand
og um falsanir og vafasama viðskiptahætti til forna. Þessir
hversdagsgripir frá 17. - 20. verða oft tímasettir með
svo mikilli nákvæmni að einungis skeikar fáeinum
árum. Þannig eru krítarpípur mikilvægt
hjálpartæki við fornleifarannsóknir sem taka til
minja frá síðari tímum, og koma að gagni
við að tímasetja aðra gripi sem þær finnast
með. Einnig koma margar fræðigreinar saman í rannsóknum
á krítarpípum, fornleifafræði, þjóðfræði,
menningarsaga, verslunarsaga og saga nautnalyfja.
|
|
|
|
|
Tímaritið KnasterKOPF er eina fornleifafræðilega
fagtímaritið á þýsku sem er helgað
þessum gripum sem eru mjög mikilvægir fyrir fornleifarannsóknir
á síðari alda minjum. Í hverju hefti ritsins
má finna greinar um rannsóknir, þar er sagt frá
fundnum munum í þýskumælandi löndum og
lesendum greint frá nýjum ritum sem varða tóbakspípur
úr leir. KnasterKOPF er sérstaklega helgað leirpípunum
eða krítarpípunum, en einnig er þar fjallað
um annað er varðar sögu tóbaksneyslu svo sem postulíns-
eða merskúmspípum og öðru er varðar sögu
tóbaksins. KnasterKOPF er ætlað að vera fræðilegur
vettvangur fyrir fagmenn og einnig áhugamenn og safnara.
KnasterKOPF er í nánu sambandi við starfsemi "Vinnuhóps
um leirpípurannsóknir" (Arbeitskreis zur Erforschung
der Tonpfeifen) og kemur yfirleitt út á sama tíma
og árlegur fundur hópsins er haldinn í apríl
/ maí. Ritið greinir frá fundum þessum og einnig
frá starfsemi sambærilegra fræðihópa í
öðrum Evrópulöndum.
KnasterKOPF er gefið út af þeim Ralf
Kluttig-Altmann fyrir fornleifa- og sögusafn Hamborgar (Hamburger
Museums für Archäologie und die Geschichte Harburgs - Helms-Museum
Hamburg).
|